hlaupahjóla völlur við óla run fyrir krakka sem elska að vera á hlaupahjólum/hjólabretti.
Frábær hugmynd og góð staðsetning. Tiltölulega stutt fyrir mjög marga, beinar leiðir fyrir flesta og strætó stoppar nálægt. Undirgöng og hjólaleið gera þetta að frábærri staðsetningu. Það vantar líka svona aðstöðu í bænum. Hálf fúlt að þurfa að fara í annað bæjarfélag til að komast á svona braut.
😍
Þessi hlaupahjóla- og brettavöllur sem krakkarnir eru að kalla eftir væri frábært framtak og aðstaðan myndi nýtast fyrir alla krakka í Suðurbæ og í bænum öllum enda staðsetningin á Óla Run-túninu miðsvæðis og aðgengileg. Hlaupahjóla- og brettavöllur myndi breyta mjög miklu fyrir stóran hóp sem sækir nú brettapark og velli innandyra eða fer í Reykjavík til að komast á svona völl. Þessi aðstaða væri mjög hvetjandi fyrir útiveru og fjölbreytta hreyfingu fyrir krakkana í heilsubænum Hafnarfirði.
Krakkar í Hafnarfirði vilja fleiri tækifæri til útivistar og hreyfingar. Það er afar vinsælt að eiga hlaupahjól og völlur væri geggjaður fyrir krakkana að hreyfa sig, leika og æfa trix. Þetta myndi henta fyrir krakka á öllum aldri. Það er nóg pláss við Óla Rún tún og fullt af krökkum sem búa í hverfunum í kring.
Flott hugmynd, börnin á heimili styðja hana heilshugar!
Frábær hugmynd
Styð þessa hugmynd algjörlega, Holtið þarf smá meira líf i hverfið að minu mati, það er ekki mikið um uppbyggingu á holtinu og það mætti alveg hressa aðeins uppá þetta og bjóða öllum i hverfið okkar að koma að njóta
Þetta er einmitt sem vantar þarna ásamt hjólabretti velli,
Geggjuð hugmynd. Nýta plássið.
Fjölbreytt útivist fyrir börnin í bænum
Frábær hugmynd sem eykur líf og fjölbreytileika á túninu okkar.
Væri virkilega flott og góð hreyfing fyrir krakkana
Frábært hugmynd og vonandi verður þetta að veruleika.
Frábær hugmynd, það er vöntun á svona í Hfj
Mjög hlynnt því að þetta svæði verði meira nýtt. Góð hugmynd hjá þessum ungu drengjum.
Frábær hugmynd, nýtist krökkum og bara öllu fólki á hlaupahjólum, reiðhjólum og hjólabrettum.
Þegar börnin vilja vera meira úti að hreyfa sig er skylda að hlusta. Þetta er frábær hugmynd.
Geggjuð hugmynd
100% þetta vantar klárlega í hverfið
Frábær hugmynd. Akkúrat það sem vantar. Heilsusamlegt og skemmtilegt
Frábær hugmynd og hreyfing fyrir krakkana
Skemmtilegt fyrir börnin
Mikilvægt! Ég styð þessar framkvæmdir.
Stórgóð hugmynd sem styður við heilsusamlega lífstíl og útiveru! Um að gera að gera svæðið að alvöru útivistarsvæði.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation